Dílabasalt
Útlit
Dílabasalt er tegund basalts.
Lýsing
Flestar gerðir basalts er að finna díla þ.e. stóra kristalla í dul-eða fínkornóttum grunnmassa. Algengustu dílarnir eru feldspatdílar og er dílabasalt nefnt eftir þeim. Sé mikið af dílum í berginu þá kallast það tví-eða þrídílótt ef þeir finnast með feldspati. Ef það er lítið af feldspati þá kallast það pikrít eða ankaramít.
Uppruni og útbreiðsla
Dílabasalt myndar um það bil 10% af basalti hraunstaflans á Íslandi. Myndar lög og lagasyrpur sem hægt er að rekja langar leiðir og hægt er að nota þau sem „leiðalög“ við jarðfræðikortalagningu.
Dílarnir uxu í kvikuhólfinu neðanjarðar og blönduðust kvikunni sem bar þá til yfirborðs í eldgosum. Eru ofast af öðrum uppruna en bergið sem þeir finnast í.
Heimild
- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2