Fara í innihald

Birki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 17. nóvember 2016 kl. 17:55 eftir 130.208.204.150 (spjall) Útgáfa frá 17. nóvember 2016 kl. 17:55 eftir 130.208.204.150 (spjall) (Listi yfir tegundir og útbreiðslukort)
Birki
Þýsk Ilmbjörk
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur: Beykiættbálkur (Fagales)
Ætt: Birkiætt (Betulaceae)
Ættkvísl: Betula
L.
Útbreiðsla Betula
Útbreiðsla Betula
Undirættkvíslir
  • Betulenta
  • Betulaster
  • Neurobetula
  • Betula
  • Chamaebetula
Samheiti
  • Betulaster Spach
  • Apterocaryon Opiz
  • Chamaebetula Opiz

Birki er ættkvísl jurta af birkiætt sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Birki er skylt elri (ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar. Birkitegundum er skift í fimm undirættkvíslir.

Birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki.

Birki á Íslandi

Á Íslandi eru tvær birkitegundir innlendar og jafnframt mjög einkennandi fyrir íslenska náttúru: ilmbjörk (birki í daglegu tali) og fjalldrapi. Ilmbjörkin er eina innlenda tré landsins sem myndar skóga. Við landnám er talið að allt að þriðjungur Íslands hafi verið þakinn birkiskógi.

Talið er líklegt að vaxtarlag birkiskóga hafi breyst frá landnámi vegna búskaparhátta og gangið hafi verið á birkiskóga svo skógarleifar eru núna kræklóttar hríslur. Fjalldrapi getur æxlast við birki og nefnist blendingurinn skógviðarbróðir en hann er kræklóttur runni. Árið 1987 hófust birkikynbætur á Íslandi og var markmið að rækta beinvaxin há þróttmikið birkitré og endurheimta forna reisn íslenska birkisins. Birki sem er helst þekkt á Íslandi;

Birkitegundir

Birch leaves
Birki ættað frá Evrópu og Asíu
  1. Betula albosinensis—(norður og mið Kína)
  2. Betula alnoides—(Kínana, Himalaja, norður Indókína)
  3. Betula ashburneri (Bhutan, Tíbet, Sichuan, Yunnan fylki í Kína)
  4. Betula baschkirica (austur Evrópa Rússland)
  5. Betula bomiensis (Tíbet)
  6. Betula browicziana (Tyrkland og Georgía)
  7. Betula calcicola (Sichuan + Yunnan fylki í Kína)
  8. Betula celtiberica (Spánn)
  9. Betula chichibuensis (Chichibu héruð í Japan)[1]
  10. Betula chinensis—(Kína, Kórea)
  11. Betula coriaceifolia (Uzbekistan)
  12. Betula corylifolia (Honshu eyja í Japan)
  13. Betula costata (norðaustur Kína, Kórea, Primorye hérað í Rússlandi)
  14. Betula cylindrostachya (Himalaja, suður Kína, Myanmar)
  15. Betula dahurica (austur Síbería, austast í Rússlandi, norðaustur Kína, Mongólía, Kórea, Japan)
  16. Betula delavayi - (Tíbet, suður Kína)
  17. Betula ermanii—(austur Síbería, austast í Rússlandi, norðaustur Kína, Kórea, Japan)
  18. Betula falcata (Tajikistan)
  19. Betula fargesii (Chongqing + Hubei fylki í Kína)
  20. Betula fruticosa (austur Síbería, austast í Rússlandi, norðaustur Kína, Mongólía, Kórea, Japan)
  21. Betula globispica (Honshu eyja í Japan)
  22. Betula gmelinii (Síbería, Mongólía, norðaustur Kína, Kórea, Hokkaido eyja í Japan)
  23. Betula grossa— (Japan)
  24. Betula gynoterminalis (Yunnan fylki í Kína)
  25. Betula honanensis - (Henan fylki í Kína)
  26. Betula humilis eða Betula kamtschatica— Kamchatka birki platyphylla (norður og mið Evrópa, Síbería, Kazakhstan, Xinjiana, Mongólía, Kórea)
  27. Betula insignis - (suður Kína)
  28. Betula karagandensis (Kazakhstan)
  29. Betula klokovii (Ukraína)
  30. Betula kotulae (Ukraína)
  31. Betula litvinovii (Tyrkland, Íran, Kákasus)
  32. Betula luminifera (Kína)leyjar)
  33. Betula medwediewii— (Tyrkland, Ír
  34. Betula maximowiczii— (Japan, Kúrian, Kákasus)
  35. Betula megrelica (Republic of Georgia)
  36. Betula microphylla (Síbería, Mongólía, Xinjiang, Kazakhstan, Kyrgyzstan, Uzbekistan)
  37. Betula nana— Fjalldrapi (norður og mið Evrópa, Rússland, Síbería, Grænland, Northwest Territories í Kanada))
  38. Betula pendula— Hengibjörk (útbreidd í Evrópu og norður Asíu; Marokkó; villst úr ræktun í Nýja Sjálandi og dreifðum svæðum í Norður Ameríku)
  39. Betula platyphylla (Betula pendula var. platyphylla)— (Síbería, austast í Rússlandi, Manchúríu, Kórea, Japan, Alaska, vestur Kanada)
  40. Betula potamophila (Tajikistan)
  41. Betula potaninii (suður Kína)
  42. Betula psammophila (Kazakhstan)
  43. Betula pubescens— Ilmbjörk (Evrópa, Síbería, Grænland, Nýfundnaland; villst úr ræktun á dreifðum stöðum í Bandaríkjunum)
  44. Betula raddeana (Kákasus)
  45. Betula saksarensis (Khakassiya svæði í Síberíu)
  46. Betula saviczii (Kazakhstan)
  47. Betula schmidtii (norðaustur Kína, Kórea, Japan, Primorye fylki í Rússlandi)
  48. Betula sunanensis (Gansu fylki í Kína)
  49. Betula szechuanica (Betula pendula var. szechuanica)—Sichuan birki (Tíbet, suður Kína)
  50. Betula tianshanica (Kazakhstan, Kyrgyzstan, Tajikistan, Uzbekistan, Xinjiang, Mongolia)
  51. Betula utilis— (Afghanistan, mið Asía, Kína, Tíbet, Himalaja)
  52. Betula wuyiensis (Fujian fylki í Kína)
  53. Betula zinserlingii (Kyrgyzstan)

Ath: í mörgum Amerískum heimildum er B. pendula og B. pubescens víxlað, þrátt fyrir að þetta séu aðskildar tegundir með mismunandi litningatölu.

Birki ættað frá Norður Ameríku
  1. Betula alleghaniensis—Gulbjörk (B. lutea) (austur Kanada, Vötnunum Miklu, Norðaustur Bandaríkin, Appalachiafjöll)
  2. Betula cordifolia—(austur Kanada, Vötnunum Miklu, Norðaustur Bandaríkin)
  3. Betula glandulosa—(Síbería, Mongólía, austast í Rússlandi, Alaska, Kanada, Grænland, fjöll vestur Bandaríkjanna og Nýja England, Adirondacks)
  4. Betula lenta— (Quebec, Ontario, austur Bandaríkin)
  5. Betula michauxii— (Nýfundnalandland, Labrador, Quebec, Nova Scotia)
  6. Betula minor— (austur Kanada, fjöll norðurhluta Nýja Englands og Adirondacks)
  7. Betula nana—fjalldrapi (einnig í Evrópu og norður Asíu)
  8. Betula neoalaskana— (Alaska og norður Kanada)
  9. Betula nigra— (austur Bandaríkin)
  10. Betula occidentalis— (B. fontinalis) (Alaska, Yukon, Northwest Territories, vestur Kanada, vestur Bandaríkin)
  11. Betula papyrifera— (Alaska, mest af Kanada, norður Bandaríkin)
  12. Betula populifolia— (austur Kanada, norðaustur Bandaríkin)
  13. Betula pumila— (Alaska, Kanada, norður Bandaríkin)
  14. Betula uber- (suðvestur Virginia)

Heimild

Tengt efni


  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. Kinver, Mark (30. september 2015). „UK team germinates critically endangered Japanese birch“. BBC News. BBC. Sótt 30. september 2015.