Fara í innihald

Birki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 8. mars 2013 kl. 16:21 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2013 kl. 16:21 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 91 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q25243)
Birki
Þýsk Ilmbjörk
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur: Beykiættbálkur (Fagales)
Ætt: Birkiætt (Betulaceae)
Ættkvísl: Betula
L.
Tegundir

Birki er ættkvísl jurta af birkiætt sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Birki er skylt elri (kallast einnig ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar.

Birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki.

Birki á Íslandi

Á Íslandi eru tvær birkitegundir innlendar og jafnframt mjög einkennandi fyrir íslenska náttúru: ilmbjörk (birki í daglegu tali) og fjalldrapi. Ilmbjörkin er eina innlenda tré landsins sem myndar skóga. Við landnám er talið að allt að þriðjungur Íslands hafi verið þakinn birkiskógi.

Tengt efni

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Snið:Tengill ÚG