Láland
Útlit
Láland er fjórða stærsta eyja Danmerkur, um 1243 ferkílómetrar að flatarmáli. Eyjan er í Eystrasalti, rétt sunnan við Sjáland, í Stórstraumsamti. Stærsti bærinn er Nakskov með um tíu þúsund íbúa. Aðrir bæir eru Maribo, Sakskøbing og Rødby. Láland er vegtengt við næstu eyju, Falstur, með göngum.