Láland
Útlit
Láland (danska: Lolland) er fjórðja stærsta eyja Danmerkur, um 1243 ferkílómetrar að flatarmáli. Eyjan er í Eystrasalti, rétt sunnan við Sjáland, í Stórstraumsamti. Stærsti bærinn er Nakskov með um tíu þúsund íbúa. Aðrir bæir eru Maribo, Sakskøbing og Rødby. Vegasamband á milli Lálands og næstu eyju, Falsturs, er um tvær brýr og ein jarðgöng en ferja gengur á milli Lálands og Langalands. Önnur ferja tengir Láland og Fehmarn, sem er eyja í Schleswig-Holstein í Þýskalandi.