Fara í innihald

Indítónlist

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 22. mars 2012 kl. 15:31 eftir 85.220.21.100 (spjall) Útgáfa frá 22. mars 2012 kl. 15:31 eftir 85.220.21.100 (spjall) (Ný síða: == Indie-tónlist == Indie er stytting á orðinu [http://en.wikipedia.org/wiki/Independent_music independent]. Frægustu undirgreinar indie tónlistarinnar eru [http://en.wikipedia...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Indie-tónlist

Indie er stytting á orðinu independent. Frægustu undirgreinar indie tónlistarinnar eru indie rock og indie pop. Tónlistarstefnan á rætur sínar að rekja til Englands á 9.áratugnum. Hugtakið ,,indie” hefur verið notað í langan tíma til að lýsa tónlistarmönnum og hljómsveitum sem reiða sig á óháð plötufyrirtæki, oft sín eigin plötufyrirtæki. Á 9.áratugnum voru plötufyrirtæki að verða stærri og stærri og höfðu fyrirtækin svo mikil völd að þessi minni, sjálfreknu fyrirtæki áttu erfiðara fyrir. Í daglegu tali er oft talað um fólk sem hlustar á indie tónlist mjög útaf fyrir sig og má vitna í enska orðið hipster. Íslensk þýðing á þessu orði væri að vera manneskja sem er mjög hlynnt öðruvísi hlutum. Oft svo frábrugðnum hlutum að fólk skilur ekki fegurðina í þeim, líkt og indie tónlist getur hljómað í sérstökum eyrum.

Á árum áður var mun erfiðara fyrir hljómsveitir að koma sér á framfæri og plaköt, útvarpið og geisladiskar voru notað til auglýsinga og hlustunar. En nú í dag reiða þessar indie hljómsveitir og sjálfreknu plötufyrirtækin mikið á internetið. Internetið er hagkvæm leið til að auglýsa hljómsveitirnar, tónlistarmennina, ný lög, nýjar plötur o.s.frv. Helstu síður sem notaðar eru til að koma hljómsveitum á framfæri eru myspace, facebook, soundcloud, bandcamp.


  • Indie-rokk
  • Indie-popp
  • Indie-folk
  • Ísland og indie stefnan

Indie rokk

Indie rock er ekki með mjög hefðbundið hljóð. Textarnir eru oft á tíðum mjög tilfinninganæmir og þeir ná ekki alltaf til stórra hópa líkt og aðrar tónlistarstefnur. Indie rokk og alternative rokk eru tvær tónlistarstefnur sem eru með hvað líkasta hljóðið. En er Nirvana, byrjuðu að slá í gegnum rétt eftir 1990, skiptust þessar tvær tónlistarstefnur í tvennt. Indie-rokkarar eru ekki í leit að peningum heldur vilja svala þörf sinni til að búa til sína eigin tóna.

Indie popp

Indie pop er undirgrein indie rocksins. Indie pop er hávaðaminna og auðveldara til hlustunar. Indie-rokkið og indie-poppið eru bæði undir þessum D.I.Y-link stíl. Orðið indie hafði verið notað í nokkurn tíma áður en indie-poppið varð að ákveðinni stefnu. Árið 1986 kom út kasetta með samansafni af lögum sem voru vinsæl í þá tíð og var einkenni laganna gítarglamur og melódísk popp lög með miklum takti. Indie-poppið var þá skilgreint sem sú stefna sem hún er í dag. Á þeim tímum sem indie-poppið náði fótfestu, var áberandi hversu ólík stefna fólksins sem aðhylltist indie-poppið var frá kynslóðinni áður, þ.e. rokkurum og pönkurum. Rokkið var samasem merki við kynþokka og tísku, en indie-poppararnir bæði skáru sig úr heildinni en einnig voru þau svo áberandi venjuleg þegar kom að klæðaburði. Hljóðfæri hvaðanæva voru notuð, svo lengi sem það kom ágætis tónn út úr glamrinu virkaði það. Hvítu miðstéttarkrakkarnir gátu nú notið sín með hvaða hljóðfæri sem þeim lysti. Tískan var einnig frábrugðin kynslóðarinnar á undan. Pönkararnir voru þekktir fyrir grimman og áberandi klæðnað, en nú voru föt indie-popparanna venjuleg, hversdagsleg, ekki með neinn sérstakan brag yfir sér. Þessir indie-popparar voru klædd í fábrotin föt, með óáberandi sýningar og með krúttlegan stimpil á sér.

Indie folk

Indie-folk er lítil undirgrein indie-rokksins sem er undir miklum áhrifum folk tónlistarinnar, country og indie-rokksins. Indie-folkið er mun nýrra af nálinni heldur en hinar tvær gerðirnar, þ.e. indie-rokk og indie-popp.


Ísland og indie stefnan

Margar misþekktar indiehljómsveitir hafa komið til landsins. Bæði hafa hljómsveitirnar komið fram á tónleikum einar og sér og einnig á tónlistarhátíðum. Allra frægasta tónlistarhátíðin kallast Iceland Airwaves. Þar koma árlega fram allskyns hljómsveitir og tónlistarmenn. Mjög stór hluti tónlistarmannanna sem spila á hátíðinni eru íslenskar hljómsveitir, bæði frægar og einnig þær sem eru á uppleið. Erlendu hljómsveitirnar eru nánast allar þær sem eru á uppleið eða nokkuð óþekktar hljómsveitir. Á síðustu tveimur árum hafa þekktar indie hljómsveitir á borð við Bombay Bicycle Club, Everything Everything, Neon Indian, Think About Life og The Drums komið fram á hátíðinni.

Íslendingar eiga fjöldann allan af indie hljómsveitum. Indie stefnan kom ekki jafn sterklega fram á Íslandi eins og á Bretlandi og löndum þar í kring, en þó hafa landsbúar margir hverjir byrjað að búa til indietónlist.


Fyrirmynd greinarinnar var „List of indie pop artists“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 25.febrúar 2012. „Indie Pop“. Sótt 23.febrúar 2012. „Indie Pop“. Sótt 24.febrúar 2012. „DIY ethic“. Sótt 22.febrúar 2012. „C86“. Sótt 22.febrúar 2012. „If it's cool, creative and different, it's indie“. Sótt 23.febrúar 2012. „Indie Folk“. Sótt 16.febrúar 2012. „Arts Funding For Whom?“. Sótt 14.febrúar 2012.