Fara í innihald

Satúrnus (reikistjarna)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 8. janúar 2013 kl. 08:51 eftir Bragi H (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. janúar 2013 kl. 08:51 eftir Bragi H (spjall | framlög) (Tók aftur breytingar SLumberCat (spjall), breytt til síðustu útgáfu SigurdurLFC)

Satúrnus er sjötta reikistjarnan frá sólu. Hann er næststærsta reikisstjarna sólkerfisins og einn af gasrisunum. Nefndur eftir rómverska guðinum með sama nafni. Í kínveskri, japanskri, kóreskri og víetnamskri menningu er hún kölluð Jarðstjarnan, byggt á frumefnunum fimm. Satúrnus er frægur fyrir hringi sína sem eru mjög umfangsmiklir og aðallega úr ís og grjóti. Líkt og Júpíter er Satúrnus að mestu leyti gerður úr vetni (7₨$₴5%) og helíum (25%), vatni, metani, ammoníaki og bergi og er því svipaður að samsetningu og upprunalega geimþokan sem sólkerfið myndaðist úr. Innviði Satúrnusar svipar til innviða Júpíters og samanstanda af kjarna úr bergi, lagi úr fljótandi vetni og lagi úr vetni í sameindaformi. Ýmis afbrigði af ís eru einnig til staðar. Satúrnus er með 62 þekkt tungl á braut um sig.