Fara í innihald

Spjall:Persónur í Stjörnustríðsheiminum

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Sér greinar

[breyta frumkóða]

Ég er ekki alveg sammála þeirri ákvörðun að fella sumar af þessum greinum inn í þessa sameiginlegu. Svarthöfði er t.d. mjög þekkt persóna sem á frægð sem nær langt út fyrir bara aðdáendahóp Star Wars-myndanna. Það sama myndi ég segja að gildi um sumar aðrar sögupersónur (það sama myndi ég segja að gildi um einhverjar persónur úr Harry Potter-bókunum). Þar fyrir utan eru margar aðrar tungumálaútgáfur með sér greinar um frægustu persónurnar. TKSnaevarr (spjall) 24. nóvember 2022 kl. 17:58 (UTC)[svara]

Já, það má alveg færa rök fyrir því. Eins og þú segir eru aðrar útgáfur með sérgreinar um sumar þessar persónur, en ekki allar þær sem voru komnar með sérgreinar. Ég ákvað bara að byrja á því alla vega að fella þær allar saman. Það er þá hægt að setja upp sérgreinar þar sem ástæða og innihald eru til. --Akigka (spjall) 24. nóvember 2022 kl. 18:34 (UTC)[svara]